Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Kristalsfjallið

Kristalsfjallið – Hugleiðsluferðalag

Fjölskyldustund Börn
  • , Bókasafn Hafnarfjarðar
Á þessum skipulagsdegi grunnskólanna býður Jóna Lilja Guðjónsdóttir, jógakennari, öllum krökkum og foreldrum þeirra með sér inn í Kristalsfjallið – hugleiðsluferð fyrir alla aldurshópa.
Kristalsfjallið er ævintýralega falleg barnahugleiðsla sem skilur eftir sig von og styrk í ungum hjörtum. Ferðin hefur einnig verið gefin út sem bók, sem er ætluð foreldrum og öllum þeim sem vinna með börnum til að auka ímyndunarafl og sjálfsstyrkingu barnsins.
Ferðin tekur um 45 mínútur og tilvalið að nota þennan góða frídag grunnskólanna til að upplifa hugarró saman. Viðburðurinn er fyrir öll börn á grunnskólaaldri og er að sjálfsögðu ókeypis.