Rabbrýmið - Hlaðvarpsstúdíó

Rabbrýmið er opið hlaðvarpsstúdíó Bókasafns Hafnarfjarðar þar sem bækur og blaður hittast yfir hangandi hljóðnemum og allir eru til í spjall. Rýmið er opið öllum þeim sem eru með gilt bókasafnsskírteini.

Í Rabbrýminu er allur búnaður sem þarf til upptöku og vinnslu hlaðvarps. Fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref er starfsfólk til staðar til að fara yfir formsatriðin og aðstoða fyrst um sinn.

Skúffuskáld, skoðanapésar, grúskarar, bókabéusar og allir þeir sem hafa ótakmarkaða þörf til að koma sér út í kosmósið – þið eruð hjartanlega velkomin í Rabbrýmið.

Fyrir  ítarlegri upplýsingar um aðstöðuna og aðrar spurningar ekki hika við að senda tölvupóst á [email protected]

Bókanir:

  • Bókanir fara fram á bókunarsíðunni á vef Bókasafns Hafnarfjarðar
  • Athugið að ekki er hægt að bóka tíma samdægurs á bókunarsíðunni
  • Sendið tölvupóst á [email protected] eða hafið samband í s. 585 5690 til að athuga hvort hægt sé að komast að samdægurs.

Aldurstakmark:

  • Notendur Rabbrýmisins þurfa að vera 18 ára eða eldri.
  • Einstaklingar undir 18 ára þurfa að vera í fylgd með ábyrgðarmanni.

Bóka Rabbrýmið

Fylgiskjöl með Rabbrýminu