Bókasafn Hafnarfjarðar leggur sig fram við að bjóða upp á mikið úrval af bókum á íslensku, bæði eftir íslenska og erlenda höfunda. 2. hæð Bækur á íslensku eru langstærsti hluti safnskosts Bókasafns Hafnarfjarðar og má finna út um allt bókasafnið. Meðal annars: Skáldsögur Í lágum, hvítum hillum sem þræða sig eftir bókasafninu Sakamálasögur í kiljum raðast nú í stafrófsröð eftir höfundum meðal venjulegra skáldsagna Ævisögur Meðfram veggnum í átt að Önnustofu Ljóðabækur Íslendingasögur og fornrit Fræðibækur á íslensku, ensku og fleiri málum Hefja för sína í nýja hluta bókasafnsins, Strandgötumegin og þræða sig svo eftir bókasafninu í lauslegum hring Föndurbækur Í Önnustofu, nær Thorsplani Ferðahandbækur Í 900-salnum, bak við afgreiðsluna Gaflarahorn (bækur um Hafnarfjörð og Hafnfirðinga) Við innganginn Strandgötumegin Gamalt og gott Við innganginn Strandgötumegin Guðrún frá Lundi Sandemo Og margt fleira Merktar með gamalli afaklukku á kjölum bóka Nýjar bækur Nýjar skáldsögur, ævisögur, fræðibækur og ljóðabækur á íslensku eru í fallegum hillum við hliðina á afgreiðslunni. Eftir 6 mánuði hætta bækur að teljast nýjar og er raðað upp á sínum réttu slóðum. Nýjar barna- og ungmennabækur eru í viðeigandi deildum. Nýjar handavinnu- og ferðahandbækur eru í viðeigandi deildum.