Ungmenni

Ungmennadeildin er staðsett í hjarta bókasafnsins, bak við afgreiðsluna. Hún er notalegt afdrep þar sem hægt er að una sér í friði og ró.

Við hlið Ungmennadeildarinnar er salur með bókum á erlendum málum þar sem einnig má koma sér notalega fyrir. Punktur og Komma, tvö lítil næðisrými/örfundarherbergi eru skammt frá sem og Hljóðverið og Rabbrýmið.

Á ungmennadeildinni eru bækur á íslensku og ensku. Þar má meðal annars finna:

  • skáldsögur
  • ævisögur
  • fræðibækur
  • myndasögur
  • Manga-bækur