Tónlist

Tónlistardeild

Tónlistardeildin á Bókasafni Hafnarfjarðar er stærsta tónlistardeild í almenningsbókasafni á landinu. Öllum er velkomið að grúska, hlusta og fá lánað.

Tónlistardeildin er annars vegar við glerhjúpinn upp við barnadeildina og hjá Rif (geisladiskar og hljómplötur) – og svo hins vegar í Önnustofu (bækur og nótur). Hljóm- og geislaplötur eru lánaðar út í 14 daga. Á deildinni er einnig hægt að fá lánað:

  • Tónlistartímarit
  • Nótur
  • Bækur um tónlist
  • Bækur um tónlistarmenn
  • Uppflettirit
  • Tónlistartengda DVD-diska

Úrval af gamalli og nýrri tónlist

Tónlistardeildin leitast við að hafa alltaf á boðstólum gott úrval af nýútkomnu tónlistarefni af ýmsu tagi auk úrvals af gamalli tónlist.

  • Klassísk tónlist
  • Heimstónlist
  • Djass
  • Blús
  • Popp
  • Rokk

Hljóðfæri

Í Hljóðverinu í hjarta bókasafnsins, bak við afgreiðsluna eru ýmis hljóðfæri í boði til afnota á safninu sem áhugasamir gestir geta komið og fengið að spila á sér að kostnaðarlausu.

Í boði eru rafmagnstrommusett, rafmagnsgítar og rafmagnsbassi. Til þess að fá að prófa hljóðfærin þarf bara að hafa meðferðis gilt bókasafnskort. Einnig er á staðnum kassagítar sem allir geta gripið í og látið ljós sitt skína.

Fróðleikur um tónlist

Nýtt og spennandi efni

Nýkomið í apríl 2026 - GDRN & Tómas R.

GDRN & Tómas R.

  • Höfundur
    Höfundur GDRN & Tómas R.
  • Flokkur
    Flokkur Tónlist
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - miss you i do

I miss you, I do

  • Höfundur
    Höfundur Árný Margrét
  • Flokkur
    Flokkur Tónlist
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í mars 2026 - ópera

Ópera: á ferðalagi um sögu listformsins

  • Höfundur
    Höfundur Magnús Lyngdal Magnússon
  • Flokkur
    Flokkur Tónlist
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í mars 2026 - víkingur ólafsson

Opus 109

  • Höfundur
    Höfundur Víkingur Ólafsson
  • Flokkur
    Flokkur Tónlist
Skoða á Leitir.is