Börn

Barnadeildin er nálægt rúllustiganum. Þar geta börn og fjölskyldur unað saman við lestur, leik og spilamennsku.

Á barnadeildinni á 1. hæð er fyrst og fremst efni á íslensku en einnig ensku, þýsku, spænsku, Norðurlandamálum auk aragrúa annarra tungumála, svo sem arabísku og frönsku. Ríkulegt úrval er af barna- og ungmennabókum á pólsku. Mikið er til af lestrarþjálfunarefni.

 

Lestrarlemúrinn

Lestrarlemúrinn er lukkudýr Barna- og ungmennadeildar. Hann hvetur lesendur áfram, er forvitinn og með mikla ævintýraþrá – þó að kjarkinn skorti oft á tíðum og ofgnótt sé af óviljandi klaufaskap. Hann setur oft eitthvað gasalega skemmtilegt inn á Instagram.

Viðburðir

Á safninu eru reglulegir viðburðir fyrir börn og fjölskyldur

Sjá nánar á viðburðasíðu bókasafnsins.

Krílahornið

Á barnadeildinni er sérstakt krílahorn með gjafaaðstöðu. Lokanleg hlið er inn á barnadeildina svo litlir lestrarhestar geti gengið frjálsir um. Þar eru þægilegir grjónapúðar, harðspjaldabækur og fleira sem hentar krílum.

Vagna- og kerrustæði eru við fatahengið við minni bogainnganginn á barnadeildina.

Tilveran

Í Krílahorninu má finna Tilveruna sem er samtíningur bóka sem eru merktar með eilífðarmerkinu (∞). Þær eiga það sameiginlegt að geta aðstoðað og gefið foreldrum hugmyndir til að efla og hvetja barnið.

Fimm flokkar heyra undir Tilveruna:

  • Líkami og vitund
  • Fjölskyldan
  • Heimspeki og hugleiðsla
  • Tilfinningar og áskoranir
  • Samskipti

 

Sumarlestur

Sumarlestur safnsins er sívinsæll og hvetur þátttakendur til að deila því sem þeir eru að lesa, burtséð frá formi eða efnistökum. Yfir sumarið býðst lesendum að skila inn umsögnum fyrir þær bækur sem þeir hafa lesið og er dregið úr umsögnunum vikulega. Að auki býðst að halda utan um heildarlestur sumarsins með sérstökum lestrardagbókum og er dregið ur þeim að auki í lok sumars og hljóta þá nokkrir heppnir lesendur vegleg verðlaun.

Fræðsla

Grunnskólar geta bókað sérstaka fræðslu og leikskólum stendur til boða að koma í sögustundir á safninu.

Sögustund – Leikskólar

Leikskólar sem hafa áhuga á að bóka sögustund geta haft samband við okkur á [email protected].

Safnkynningar fyrir grunn- og framhaldsskólanema

Bókasafnið býður upp á safnfræðslu. Tilgangurinn er meðal annars að fræða börnin um bókasafnið sitt og kenna þeim að nýta sér safnkostinn í leik og námi.

Börnin fá leiðsögn um safnið og eru frædd um mikilvægi þess að fara vel með bækur og önnur gögn. Börn og unglingar að 18 ára aldri fá ókeypis bókasafnsskírteini gegn ábyrgð forsjáraðila.

Panta þarf tíma í safnkynningu með viku fyrirvara með tölvupósti á [email protected].

Kennarar eru hvattir til að koma með hópa sína á safnið hvenær sem er á afgreiðslutíma til að skoða og lesa eða fá safngögn að láni.

Nokkrar mismunandi gerðir af safnkynningum eru í boði: Almenn leiðsögn, ratleikir eftir aldursbilum á yngsta- og miðstigi og verkefni tengt ritskoðun og gagnrýnni hugsun fyrir unglingastig sem lesa má um hér að neðan.

Safnfræðsla: hávaði, hlaup og ærsl

Bókasöfn nútímans eru langt frá því að vera heilög grafhýsi rykfallinna bóka líkt og áður. Þau eru núna samfélagslegur vettvangur sköpunar, samræðna, miðlunar og menningar. Hlutverk bókasafna hefur breyst í takt við þarfir notendahópsins. En hvert er hlutverk notendahópanna gagnvart bókasöfnunum? Er pláss í samfélaginu fyrir öll ritverkin? Eiga allar upplýsingar og samræður rétt á sér?

Hæfniviðmið

Heimsóknin er hugsuð sem áhugaverður námsvettvangur fyrir nemendur á elsta stigi grunnskóla og fyrir framhaldsskólanema. Í heimsókninni gefst meðal annars færi á að efla eftirfarandi hæfniviðmið íslensku og samfélagsgreina samkvæmt aðalnámskrá.

  • Rætt viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og sett í samhengi við atburði daglegs lífs.
  • Rökrætt um ólík málefni af samfélagslegum og siðferðilegum toga.
  • Lesið texta við hæfi með góðum hraða og af skilningi, lagt mat á hann og túlkað.
  • Lesið sér til ánægju og fróðleiks og gert öðrum grein fyrir þeim áhrifum sem texti hefur á hann.

Fyrirkomulag
Fræðslufulltrúi tekur á móti nemendum í anddyri bókasafnsins og heldur létta kynningu um starfsemi bókasafnsins. Því næst er kynning og umræður um ritstýringu og upplýsingaveitur. Að lokum vinna nemendur verkefni í tengslum við bannaðar bækur.

Heimsóknin tekur um klukkustund og hægt er að bóka með því að senda tölvupóst á [email protected].

Nýtt og spennandi efni

Nýtt og spennandi efni

A kid's guide to New York city

A kid’s guide to New York city

  • Höfundur
    Höfundur Alexa Ward
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Hreiður, egg og æðardúnn

Hreiður, egg og æðardúnn

  • Höfundur
    Höfundur Sigrún Eldjárn
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Kalli og súkkulaðifabrikkan

Kalli og súkkulaðifabrikkan

  • Höfundur
    Höfundur Roald Dahl
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Slökkviliðsráðgátan

Slökkviliðsráðgátan

  • Höfundur
    Höfundur Martin Widmark, Helena Willis
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Draugastofan

Draugastofan

  • Höfundur
    Höfundur Kristina Ohlsson
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
lygasogur

Lygasögur?

  • Höfundur
    Höfundur Sara Ejersbo
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Litli Kristur

Litli Kristur

  • Höfundur
    Höfundur Þorgrímur Þráinsson
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Bestu vinir

Bestu vinir

  • Höfundur
    Höfundur Eva Rún Þorgeirsdóttir & Blær Guðmundsdóttir
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Allt í fokki rugli

Allt í (fokki) rugli!

  • Höfundur
    Höfundur Yrsa Þöll Gylfadóttir
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í ágúst 2026 - lína fer í eltingaleik

Lína fer í eltingaleik við lögregluþjóna

  • Höfundur
    Höfundur Astrid Lindgren
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í ágúst 2026 - appelsínugulur himinn yfir austurbæjarskóla

Appelsínugulur himinn yfir Austurbæjarskóla

  • Höfundur
    Höfundur Kristrún Guðmundsdóttir
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í ágúst 2026 - hæfileikaksólinn

Hæfileikaskólinn

  • Höfundur
    Höfundur Elín Erna Steinarsdóttir
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í ágúst 2026 - tólf þulur

Tólf þulur

  • Höfundur
    Höfundur Þórarinn Eldjárn
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í ágúst 2026 - múmínálfarnir

Múmínálfarnir: múmínmamma og halastjarnan

  • Höfundur
    Höfundur Tove Jansson
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - risapítsan

Risapítsan

  • Höfundur
    Höfundur Giuditta Campello
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - pabbi safnari

Pabbi safnari

  • Höfundur
    Höfundur Maddalena Schiavo
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - vampírur í ævintýraferð

Vampírur í ævintýraferð

  • Höfundur
    Höfundur Febe Sillani
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - konunglegur köttur

Konunglegur köttur

  • Höfundur
    Höfundur Giuditta Campello
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - hugrakkur einhyrningur

Hugrakkur einhyrningur

  • Höfundur
    Höfundur Giuditta Campello
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - gleðikakan

Gleðikakan

  • Höfundur
    Höfundur Martina Orsi
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - handbók fyrir ofurhetjur ofurskúrkar

Handbók fyrir ofurhetjur. Ellefti hluti, Ofurskúrkar

  • Höfundur
    Höfundur Elias & Agnes Våhlund
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - ég og milla

Ég & Milla: í pössun

  • Höfundur
    Höfundur Anne Sofie Hammer
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - mírabella á slæman dag

Mírabella á slæman dag

  • Höfundur
    Höfundur Harriet Muncaster
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is
Nýkomið í apríl 2026 - kattmann

Kattmann myndasöguklúbbur: sjónarhólar

  • Höfundur
    Höfundur Dav Pilkey
  • Flokkur
    Flokkur Barnabækur
Skoða á Leitir.is