Afgreiðsla

Aðalafgreiðsla er á 1. hæð bókasafnsins. Einnig er hægt að fá gögn lánuð út á öðrum afgreiðslusvæðum safnsins (barnadeild, tónlistardeild og í upplýsingaþjónustu á 2. hæð). Í afgreiðslunni er starfsfólk tilbúið að aðstoða við afgreiðslu, leitir og val á safnefni.

  • Uppfletti-iPadar eru á flestum deildum safnsins. Þar geta lánþegar sjálfir flett gögnum upp á Leitir.is, séð staðsetningu gagna og útlánastöðu.

Upplýsingaþjónusta

Sérstök upplýsingaþjónusta er staðsett á 2. hæð. Þar geta viðskiptavinir fengið aðstoð við heimildaleitir, leit í safnkosti, beiðnir um millisafnalán, kennslu á uppflettitölvur, ráðgjöf við val á lesefni og margt fleira.

Upplýsingaþjónustan er veitt:

Reynt er að leysa úr öllum fyrirspurnum á sem skemmstum tíma. Flóknari heimildaleitir geta þó tekið lengri tíma ef vel á að vera og má þá gera ráð fyrir afgreiðslu næsta dag.

Millisafnalán er í boði gegn gjaldi ef gagn er ekki til í safnkosti Bókasafns Hafnarfjarðar. Þó skal tekið fram að almenningsbókasöfn á höfuðborgarsvæðinu lána ekki millisafnalán sín á milli.

Einnig er hægt að gera innkaupatillögu sé gagnið ekki til og mun starfsfólk reyna að verða við óskum viðskiptavina eftir föngum.