Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

barnaharpan

Barnaharpan – Foreldramorgunn á Bókasafni Hafnarfjarðar

Foreldramorgnar Tónleikar Börn Fjölskyldur
  • , Bókasafn Hafnarfjarðar
Inga Björk, lýruleikari og söngkona, verður með okkur á foreldramorgni í nóvembermánuði. Hún leikur tónlist hannaða til að heilla yngstu áheyrendurna, meðal annars af nýrri plötu sem ber heitið Blær & Stilla. Gestir, ungir sem aldnir, fá m.a. að kynnast lýrum af ýmsum stærðum og gerðum í hljóðheimi tónlistarinnar.
Við ætlum að eiga saman notalega stund fyrir barnshjörtu á öllum aldri, og auðvitað verður kaffi og með þvi.