Barnadeild

Á fyrstu hæð er barnadeild og þar má fyrst og fremst finna efni á íslensku, en einnig pólsku, Norðurlandamálum, ensku, þýsku, spænsku, frönsku og arabísku. Mikið er til af lestrarþjálfunarefni.

Safnið er í samstarfi við Hafnarborg og Byggðasafnið er snýr að samræmdri fræðslu. Grunnskólar geta bókað sérstaka fræðslu um bókasöfn og heimildaleit og leikskólum stendur til boða að koma í sögustundir á safninu, og eru þær vanalega haldnar tvisvar í viku.

Fylgið barna- og ungmennadeildinni á Instagram!

Barnadeild - Bókasafn Hafnarfjarðar Barnadeild - Bókasafn Hafnarfjarðar

Krílahornið

Sérstakt Krílahorn er á barnadeildinni með gjafaaðstöðu og lokanlegu hliði svo litlir könnuðir fari sér ekki að voða.

Tilveran

Í Krílahorninu má finna Tilveruna sem er samtíningur bóka merktum með eilífðarmerkinu (∞). Þær eiga það sameiginlegt að geta aðstoðað og gefið forsjáraðilum hugmyndir til  að efla og hvetja barnið.

Flokkar sem heyra undir Tilveruna eru fimm talsins:

  • Líkamar og vitund
  • Fjölskyldan
  • Heimspeki og hugleiðsla
  • Tilfinningar og áskoranir
  • Samskipti

Lestrarlemúrinn er lukkudýr Barna- og ungmennadeildar. Hann hvetur lesendur áfram, er forvitinn og með mikla ævintýraþrá – þó að kjarkinn skorti oft á tíðum og ofgnótt sé af óviljandi klaufaskap. Hann setur oft eitthvað gasalega skemmtilegt inn á Instagram: @lemurhfj

Sögustund – Leikskólar

Leikskólum stendur til boða að koma í sögustundir á bókasafninu, og eru þær vanalega haldnar tvisvar í viku.

Sögustundir eru í boði 1. september til 31. maí. Þær eru einkum ætlaðar börnum á aldrinum 3 – 6 ára. Í sögustundum lesum við skemmtilegar sögur, förum með vísur, lesum ljóð, syngjum og höfum gaman.

Leikskólar sem hafa áhuga á að bóka sögustund hafi samband við okkur á barnade[email protected] eða bóka heimsókn í gegnum vefsíðuna okkar.

Safnkynningar – Grunnskólar

Bókasafnið býður elstu börnunum á leikskólum Hafnarfjarðar sem og 4. bekkjum grunnskólanna á safnkynningu. Tilgangurinn er meðal annars að fræða börnin um bókasafnið sitt og kenna þeim að nýta sér safnkostinn í leik og námi. Börnin fá leiðsögn um safnið og þau eru frædd um mikilvægi þess að fara vel með bækur og önnur gögn. Börn og unglingar að 18 ára aldri geta fengið ókeypis bókasafnsskírteini gegn ábyrgð forráðamanna.

Panta þarf tíma í safnkynningu með viku fyrirvara. Að sjálfsögðu geta aðrir árgangar en að ofan er getið fengið safnkynningu sé þess óskað. Ef áhugi er fyrir hendi er hægt að hafa samband:

  • í síma 585 5690
  • í tölvupósti [email protected]
  • eða bóka heimsókn á vefsíðu bókasafnsins

Enn fremur eru kennarar hvattir til að koma með hópa sína á safnið hvenær sem er á afgreiðslutíma til að skoða og lesa eða fá safngögn að láni.

Barnadeild - Bókasafn Hafnarfjarðar

Safnfræðsla: hávaði, hlaup og ærsl

Strandgata 1 hefur í gegnum tíðina hýst ýmiss konar starfsemi. Þar á meðal húsgagnaframleiðslu, banka, hársnyrtistofu, félagsmiðstöð og útvarpsstöð, skemmtistað með margrómuðum frönskum og nú Bókasafn Hafnarfjarðar.

Bókasöfn nútímans eru langt frá því að vera heilög grafhýsi rykfallinna bóka líkt og áður. Þau eru orðinn samfélagslegur vettvangur sköpunar, samræðna, miðlunar og menningar. Hlutverk bókasafna hefur breyst í takt við þarfir notendahópsins. En hvert er hlutverk notendahópanna gagnvart bókasöfnunum? Er pláss í samfélaginu fyrir öll ritverkin? Eiga allar upplýsingar og samræður rétt á sér?

Hæfniviðmið:

Heimsóknin er hugsuð sem áhugaverður námsvettvangur fyrir nemendur á miðstigi grunnskóla. Í heimsókninni gefst m.a. færi á að efla eftirfarandi hæfniviðmið íslensku og samfélagsgreina skv. aðalnámskrá.

  • Rætt viðfangsefni sem snerta trú, lífsviðhorf og siðferði og sett í samhengi við atburði daglegs lífs
  • Rökrætt um ólík málefni af samfélagslegum og siðferðilegum toga
  • Lesið texta við hæfi með góðum hraða og af skilningi, lagt mat á hann og túlkað
  • Lesið sér til ánægju og fróðleiks og gert öðrum grein fyrir þeim áhrifum sem texti hefur á hann

Fyrirkomulag heimsóknar:

Fræðslufulltrúi tekur á móti nemendum í anddyri bókasafnsins og heldur létta kynningu um starfsemi bókasafnsins. Því næst verður kynning og umræður um ritstýringu og upplýsingaveitur.
Að lokum vinna nemendur verkefni í tengslum við bannaðar bækur.

Heimsóknin tekur um klukkustund og hægt er að bóka hér með því að velja „Safnfræðsla: Hávaði, hlaup og ærsl“ í valstikunni.

Safnafræðsla - hlaup, ærsl og læti

Sumarlestur

Sumarlestur safnsins er sívinsæll og þátttakendum fer fjölgandi milli ára. Lesendur skrá sig rafrænt og halda síðan utan um lestur sinn í sérstakri dagbók. Yfir sumarið býðst lesendum að skila inn umsögn fyrir hverja bók sem þeir hafa lesið og eiga þá möguleika á að verða dregnir úr vikulegu happdrætti!

Við lok sumars er haldin uppskeruhátíð Sumarlesturs með veigum og spennandi dagskrá. Þá er dregið úr lestrardagbókunum og hljóta nokkrir heppnir lesendur vegleg verðlaun.

Reglulegir viðburðir fyrir börn og fjölskyldur

  • Foreldramorgnar
  • Smiðjur
  • Sögustundir
  • Sýndarveruleikir (VR spilun)
  • Upplestrar

Sjá nánar á viðburðasíðu bókasafnsins.

 

Jóladagatal Bókasafns Hafnarfjarðar 2021

Jóladagatal - hlaðvarp 2021

 

Í ár bjóðum við á Bókasafni Hafnarfjarðar upp á splunkunýtt, frumsamið jóladagatal.

Þættirnir eru 18 talsins og miðast þeir við virka daga svo að hægt sé að nýta þá í kennslu.
Í þáttunum þarf Lestrar-lemúrinn, lukkudýr barna- og ungmennadeildar, að finna bókasafnið á ný eftir að hafa verið stolið af frekum máv.
Snert er á helstu kennileitum bæjarins og einkennum hans, ásamt því að fjalla um þjóðsagnaarfinn og þjóðtrúna sem mótað hefur bæjarbraginn.

Þættirnir fara í loftið fimm í senn, sem ætti að gefa kennurum og öðrum áhugasömum færi á að undirbúa hlustun.

Við vonum að þið njótið og eigið ljúfa hátíð.

Hér má nálgast hlaðvarpsþættina ásamt fylgiefni fyrir kennara eða foreldra.