Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Dungeons and dragons vetrarfrí

Dungeons & Dragons – Byrjendanámskeið í vetrarfríi

Námskeið Börn Unglingar
  • , Bókasafn Hafnarfjarðar
Bókasafn Hafnarfjarðar býður upp á Dungeons & Dragons spilahitting fyrir byrjendur í vetrarfríi grunnskólanna, fimmtudaginn 14. október kl 14:00 til 17:00.
Spilahittingurinn er ætlaður nýjum og forvitnum spilurum 12 ára og eldri. Davíð Örn mun þjóna sem Spunameistari og leiða hópinn í skemmtilegu ævintýri sem er sérstaklega gert fyrir unga spilara sem eru að stíga sín fyrstu skref í hugspunaspilun. Ekki þarf að kunna neitt né koma með neitt með sér annað en ímyndunaraflið og ævintýraþorstann, allt sem til þarf verður á staðnum
Skráningar er þörf og takmörkuð sæti í boði. Skráning fer fram á [email protected]