Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Svarti skafrenningurinn

Svarti Skafrenningurinn – Sýning í Bæjarbíói

Kvikmyndir Börn Unglingar Fjölskyldur Fullorðnir Eldri borgarar
  • , Bæjarbíó
Í tilefni Bóka- og Bíóhátíðar, í samvinnu við Fenrir Films og Hafnarfjarðarbæ, blæs Bókasafnið til Bíókvölds!
Ungi sauðfjárbóndinn Kormákur öðlast ofurkrafta fyrir tilstilli lýsisfulls hrúts, – sem betur fer! Reykjavík er föst í klóm viðurstyggilega glæpahringja og ofurþrjóta sem svífast einskis, og lögreglan stendur á gati. Aðeins einn maður getur staðið gegn yfirvofandi heimsyfirráðum illskunnar.
Hann er virðing. Hann er réttlæti. Hann er…
Svarti Skafrenningurinn.
Þessi bráðskemmtilega íslenska ofurhetjumynd er einstakt dæmi um hvað ungt fólk vopnað myndavélum, vilja og góðum hugmyndum getur áorkað, og eru allir ungir kvikmyndagerðarmenn hvattir til að mæta!
Fenrir Films er íslenskt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í vinnslu á myndrænu efni. Svarti Skafrenningurinn er eitt af þeirra fyrstu verkefnum. Hér má sjá að ekkert stoppar unga kvikmyndagerðarmenn í ham, og hefur fyrirtækið gefið út 17 titla síðan þá, sem hafa hlotið sýningar á kvikmynda- og stuttmyndahátíðum um allan heim.
Með á sýningunni verður framleiðslustjóri Fenrir Films, Arnar Benjamín, og situr fyrir svörum.