Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Rappsmiðja fyrir 9-12 ára

Rappsmiðja fyrir 9-12 ára!

Smiðjur Börn
  • Fjölnotasalur, Bókasafn Hafnarfjarðar
Ókeypis rappsmiðja með Reykjavíkurdætrum fyrir 9 – 12 ára (4. – 7. bekk) á Bókasafni Hafnarfjarðar! Leiðbeinendur og Yfirrapparar eru Ragga Holm og Steinunn Jónsdóttir, þekktar úr Reykjavíkurdætrum.
Skráning fer fram á [email protected] eða í skilaboðum hér á fésinu!
***
A free rap-workshop with Daughters of Reykjavík Steinunn and Ragga. The workshop is aimed at 9-12 y.o. and held at Hafnarfjörður Library.
Registration is neccessary: [email protected]
Smá um forsprakka námskeiðsins:
Ragga Holm er menntaður tómstunda- og félagsmálafræðingur og hefur gegnt starfi aðstoðarforstöðumanns á frístundaheimili og félagsmiðstöð auk þess sem hún hefur haldið margs konar námskeið fyrir grunnskólabörn, unglingadeildir og menntaskóla. Ragga starfar nú sem útvarpskona á Kissfm 104.5 og hefur verið plötusnúður og rappari í hljómsveitinni Reykjavíkurdætrum frá árinu 2017. Árið 2018 gaf Ragga einnig út sólóplötuna Bipolar sem hlaut góðar viðtökur.
Steinunn Jónsdóttir stundaði nám í klassískum söng og víóluleik á sínum yngri árum samhliða krefjandi dansnámi í Listdansskóla Íslands. Hún hefur starfað sem tónlistarkona og danskennari frá árinu 2011. Steinunn er einn af forsprökkum hljómsveitarinnar Amabadama og fyrir texta sína á plötunni Heyrðu mig nú var hún tilnefnd textahöfundur ársins á íslensku tónlistarverðlaununum 2014/2015. Hún hefur mikla reynslu af því að vinna með börnum og því að kenna bæði framkomu og textasmíð.
Hljómsveitin Reykjavíkurdætur kom eins og stormsveipur inn í íslenskt menningarlíf fyrir um áratug og vakti strax mikla athygli fyrir hispurslausa texta, óheflaða framkomu og sérstöðu sína sem hópur kvenna í íslenskri rappsenu. Frá árinu 2013 hefur hljómsveitin komið fram í yfir 20 löndum, spilað á öllum helstu hátíðum og viðburðum hérlendis og unnið til fjölda verðlauna, en má þá helst nefna hin virtu MME verðlaun á Eurosonic og viðurkenningu Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu árið 2019. Dæturnar, sem eru átta talsins, hafa á sínum starfsferli gefið út þrjár plötur og fjölda smáskífa auk þess sem þær hafa staðið fyrir námskeiðum í textasmíði og rappi fyrir börn og haldið fyrirlestra bæði hérlendis og erlendis.