Natalía Jónsdóttir, píanóleikari og tónlistarunnandi, æfði klassískt píanó í 10 ár. Hún segist sjálf engin atvinnumaður í tónlist, en hún mætir hér til að sýna að allir geta elskað píanóið og klassíska tónlist hverskonar og notið þess að leika hana. Það geta ekki allir verið Víkingur, en við getum öll elskað tónlist. Natalía ætlar að leika uppáhaldsverkin sín, en meðal hennar uppáhaldstónskálda eru Chopin, Bach og Grieg, og með þeirra hjálp langar henni að sýna fram á fjölbreytileika þeirra tilfinninga sem píanóið nær að fanga.
Natalía Jónsdóttir – Músík í mars | Tónleikar á Bókasafni Hafnarfjarðar
Tónleikar Eldri borgarar Fjölskyldur Fullorðnir Unglingar
- Jarðhæð, Bókasafn Hafnarfjarðar