Við sitjum ekki að auðum höndum í sumar, heldur höldum gleðinni á lofti með tónlist og sögum í allt sumar. Í samstarfi við Bjarta daga stendur Bókasafnið fyrir tónleikum og námskeiðum, sögustundum og fjölskyldudagskrá, og svo er auðvitað sumarlesturinn á sínum stað. Dagskráin er eftirfarandi 1001 skór – Barnaganga – 16. júní|17:00 Blær & Stilla – Tónleikar – 18. júní|13:00 Meridian Metaphor Tónleikar – 22. júní|17:00 Vertu þitt sannasta sjálf Námskeið og tónsmiðja – 7. júlí|15:00 BREK Tónleikar – 20. júlí|17:00 Valaból Fjölskylduganga – 11. Ágúst|18:00 Frekari upplýsingar um hvern viðburð má svo finna hér á síðunni undir ‘Viðburðir’ og á Facebooksíðu Bókasafnsins. Gleðilegt sumar!