Heimar og himingeimar 2026 Ys og þys var á búninga- og leikjahátíðinni Heimum og himingeimum en ríflega tólf þúsund gestir sóttu hana. Hátíðin var haldin í þriðja sinn. Metþátttaka var í cosplay-keppni hátíðarinnar en alls tóku 14 þátt. Metnaðurinn var mikill og búningarnir og leikmunirnir eftir því. Jessica Chambers frá Transatlantica Crochet cosplayer bar sigur úr býtum sem drottningin Anna. „Standardinn í ár var einfaldlega truflaður. Hér er fólk sem heklar og hannar allt frá grunni – þetta er nett klikkun á besta mögulega hátt,“ segir Unnur Helga Möller, framkvæmdastjóri hátíðarinnar. Kjóll Jessicu hafi einmitt allur verið heklaður. Hér má sjá Jessicu Chambers með gulu kórónuna í græna heklaða kjónum sínum sem Anna drottning. Nú bíður Jessicu það verkefni að keppa fyrir Íslands hönd í úrslitum NCC á NärCon í Svíþjóð. NCC er ein stærsta cosplay-keppni Evrópu. Um þrjátíu þúsund gestir sækja hátíðina árlega. Um 50 sjálfboðaliðar stóðu sem klettur að baki hátíðinni og lögðu meðal annars hönd á plóg við uppsetningu leikmynda og muna. Frágangi er að mestu lokið, en í gærmorgun beið starfsfólks meðal annars það verkefni að taka niður mannætuplöntu og geimskip sem enn stóðu í salnum – sem eins konar minnisvarðar um afar viðburðamikla og litríka helgi. Unnur segir hátíðina sýna vel hversu öflug íslenska búninga- og leikjasenan er. Um leið sé að byggjast upp sífellt meiri þekking og reynsla í kringum Heima og himingeima. Mikilvægt sé að hlúa áfram að samfélaginu sem hefur myndast í kringum hátíðina. „Núna höldum þétt utan um þessa senu og ekki síður utan um þennan ótrúlega hóp sjálfboðaliða sem gerir hátíðina mögulega. Það sem þau leggja á sig er ómetanlegt.“ Heimar og himingeimar hafa á skömmum tíma skapað sér sterkan sess meðal viðburða í Hafnarfirði. Þar fær fólk rými til að hittast á eigin forsendum, deila áhugamálum sínum og sköpun og kynnast heimum sem það hefur jafnvel aldrei áður stigið inn í. Já, heimarnir halda áfram að stækka. Myndasyrpa