Skert þjónusta dagana 2. – 8. september

Tilkynningar

Skert þjónusta verður dagana 2. – 8. september vegna búningasamkomunnar Heima og himingeima.

Þessa daga verður ekki allur safnkostur Bókasafns Hafnarfjarðar aðgengilegur.

Heimar og himingeimar 2026

Dagana 4. -6. september verður búningahátíðin Heimar og himingeimar haldin í þriðja sinn á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Unnið verður að uppsetningu hátíðarinnar frá miðvikudeginum 2. september.
Á meðan uppsetning og hátíðin standa yfir verður ekki allur safnkostur bókasafnsins aðgengilegur.
Nánari upplýsingar um hátíðina og dagskrá helgarinnar má finna á himingeimar.is.