Svakalega lestrarkeppnin 2026

Fréttir

Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. – 7. bekk um land allt. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu 15. september til 6. október 2026.
Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.

Svakalega lestrarkppnin 2026

Svakalega lestrarkeppnin er lestrarátak fyrir krakka í 1. – 7. bekk um land allt. Allir skólar geta tekið þátt og keppa um hver les mest á tímabilinu 15. september til 6. október 2026.
Markmið keppninnar er að auka lestraránægju barna.

Í keppninni skrá skólar niður hversu lengi nemendur lesa og senda inn tölur í lok keppninnar. Skólinn sem les í flestar mínútur sigrar keppnina og hreppir titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins ásamt því að fá glæsileg bókaverðlaun.

Á barnadeild Bókasafns Hafnarfjarðar má nú finna litla miða fyrir nemendur og foreldra til að skrá lesturinn sem fer fram á bókasafninu. Allt gildir!

Svakalega lestrarkppnin 2026

SKRÁNING HÉR.

Hvernig virkar keppnin?

Hverjir taka þátt? Krakkar í 1.-7. bekk um land allt.

Hvenær? 15. september – 6. október 2026. Úrslit eru tilkynnt 15.október.

Hvernig tekur skólinn þátt? Skólinn skráir sig til leiks með því að fylla út upplýsingar HÉR. Í hverjum skóla þarf að vera einn tengiliður sem sér um að senda tölur inn í lok keppninnar – í síðasta lagi 10. október – á sérstöku eyðublaði.

Hvaða lestur má skrá?
Í lestrarkeppninni má skrá:

  • Allan yndislestur – bæði heima og í skólanum (og á bókasafninu); skáldsögur, myndasögur, fræðibækur, myndabækur, hljóðbækur, ljóð.
    Athugið að skrá aðeins virka hlustun á hljóðbókum, þ.e.a.s. skrá mínúturnar sem barnið er að hlusta og fylgjast með sögunni. (Ath. barnið þarf samt ekki að vera að fylgjast með textanum í bók á meðan hlustað er.)
  • Lestur á öðru tungumáli en íslensku.
  • Yndislestur foreldra fyrir barn í 1. bekk, þar sem mörg þeirra eru ekki byrjuð að lesa sjálf.
  • Lestur kennara í nestistíma í skólanum. Þá fá allir nemendur sem hlusta að skrá mínútur.
  • EKKI á að skrá lestur á námsbókum.

Hvernig vinnur skóli keppnina? Í lok keppninnar sendir tengiliður skólans inn heildarfjölda mínútna sem nemendur í 1. – 7. bekk hafa lesið. Við deilum mínútufjölda upp með heildarfjölda nemenda í 1. – 7. bekk til að minni skólar eigi jafn mikinn möguleika á að vinna og þeir stóru. Sá skóli vinnur sem hefur lesið í flestar mínútur að meðaltali.

Tengiliður þarf að senda inn tölur í síðasta lagi 10. október.
Úrslit eru kynnt 15. október.

Hvað er í verðlaun? Skólinn sem vinnur fær glæsileg bókaverðlaun, viðurkenningarskjal og titilinn Svakalegasti lestrarskóli landsins 2026.

Nánari upplýsingar á www.sogusmidjan.is.