Heimar og himingeimar | 4.-6. september 2026

Fréttir

Heimar og Himingeimar er samkoma búningaáhugafólks og fólks í búningaíþróttamennsku til að kynna og upphefja jákvæða og þroskandi leikhegðun fyrir fólk á öllum aldri. Staðið er að heilli helgi af skemmtun, sköpun, keppnum, smiðjum og kynningum auk námskeiða í aðdraganda samkomunnar. Maðurinn er aldrei of gamall til að leika sér, skapa og gera lífið skemmtilegra og nota ímyndunaraflið til að ferðast bæði um heima og himingeima.

Heimar og himingeimar 2026

Heimar og Himingeimar er sameiginlegt átak búningaáhugafólks og fólks í búningaíþróttamennsku tengdum búningaáhugamálum til að kynna og upphefja jákvæða og þroskandi leikhegðun fyrir fólk á öllum aldri, bæði sem áhugamál, íþrótt og fjölskylduvænt verkefni fyrir alla aldurshópa

Upprunlega varð hugmyndin til þar sem hópurinn sem stendur að hátíðinni sá að enginn vettvangur var fyrir unga sem aldna í áhugamálinu til að hittast, tengjast og gleðjast saman. Samkoman er hugsuð fyrir einstaklinga í jaðaráhugamálum tengdum búninga- og leikmunagerð en auðvitað eru allir velkomnir í búningi eður ei, á öllum stigum og hver eftir sínu nefi og þægilegheitum, enda eru mikilvægustu skilaboð Heima og Himingeima að vera maður sjálfur og leika sér.

Dagskrá

Er mjög metnaðarfull og hægt er að skoða hana á vefsíðunni: himingeimar.is.

Smiðjur

Það verður nóg að gera hjá okkur. Komdu og vertu með! Efni er ókeypis og við getum skapað og búið til á meðan birgðir endast. Smiðjurnar geta aðeins tekið við vissum fjölda, og fólk getur tekið frá pláss á þjónustuborði í smiðjurými. Tekið er inn eftir númerum og plássi. Ef fólk er seint fyrnist miðinn.

Cosplay-keppnin

Cosplay er þegar fólk klæðist búningi sem er annanhvort endursköpun á persónu úr einhverju afþreyingarefni, eða hannar sinn eigin búning sem passar inn í fyrirfram skapaðan söguheim.

Keppnin er öllum opin og með sérstökum flokkum til að tryggja sanngjarnt mat á mismunandi stigum kunnáttu og reynslu. Til viðbótar við þekktar persónur eru eigin persónur (original characters) leyfðar. Allir búningar úr hvers kyns búningaáhugamálum er gjaldgengir í þessari keppni.

Keppt er í þremur flokkum:

  • Ungliðaflokki (undir 14 ára)
  • Cosplayflokki (14 ára og eldri)
  • Handverksflokki (meira en 60% af búningi er heimagerður/ekki aðkeyptur).

Heimar og Himingeimar eru þátttakendur í Nordic Cosplay Championship, og mun sigurvegari í handverksflokki keppa fyrir Íslands hönd á NärCon ráðstefunni í Svíþjóð.

Hátt í 4.000 manns mættu á fyrstu hátíðina í ágúst 2024, langt fram yfir áætlaðan fjölda, og tvöfaldaði hátíðin sig sumarið 2025 með 10.000 gestakomum Við ætlum að halda áfram og gera betur – og leika okkur um Heima og Himingeima.