Sumarlestur 2026 – Gúndi geithafur

Fréttir

Sumarlestur verður með breyttu móti í ár, en Bókasafn Hafnarfjarðar styður við sameiginlegan sumarlestur MMS og félags almenningsbókasafna með því að dreifa lestrar-vegabréfum Gúnda geitar  á skólabókasöfnin.

Inni í vegabréfinu er landakort og svaðilförin hefst með Gúnda geithafri efst í vinstra horni.

Markmiðið er að lesa í 15 mínútur á dag og merkja þá við hvert barnið er komið á leið Gúnda í grasleitinni miklu. Við fjórða hvern lestur hafa börnin lesið í klukkustund og lenda á stjörnu. Fyrir hverja stjörnu fá þau stimpil eða límmiða í vegabréfið á næsta bókasafni og jafnframt happamiða til að setja í lukkupott.

Nánari upplýsingar, þrautir og lista yfir bókasöfn sem taka þátt má finna á vefsíðunni sumarlestur.is.

Sumarlestur 2026 - Gúndi geithafur