Bókasafnið undirbýr flutning

Tilkynningar

Bókasafn Hafnarfjarðar undirbýr flutning frá Strandgötu 1 yfir í Fjörð.

  • 1. maí – hætt að taka við frátektum
  • 11. maí – 3. hæð lokar
  • 18. maí – Bókasafn Hafnarfjarðar lokar vegna flutninga
Flutningar - tilkynning

Bókasafn Hafnarfjarðar undirbýr flutning frá Strandgötu 1 yfir í Fjörð.

  • 1. maí – Bókasafnið hættir að taka við frátektum, millisafnalánabeiðnum og innkaupatillögum frá og með 1. maí.
  • 11. maí – Deild erlendra tungumála, ungmennadeild, lesstofa og Rabbrými á 3. hæð bókasafnsins loka.
  • 18. maí – Bókasafn Hafnarfjarðar lokar vegna flutninga – við hlökkum til að sjá ykkur í Firði í júlí.
  • Hjálpið okkur að flytja! Fáið sem mest að láni fyrir 18. maí. Engar sektir verða reiknaðar á útlánum á meðan bókasafnið er lokað.

Við bendum á að bókasafnsskírteini lánþega okkar virka á öllum almenningsbókasöfnum á höfuðborgarsvæðinu.

Einnig er um að gera að kynna sér Rafbókasafnið og Libby – þar er að finna úrval rafbóka, hljóðbóka og tímarita, sem lánþegar geta nýtt sér að kostnaðarlausu.