Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Síðasta lag fyrir myrkur, lítil

Síðasta lag fyrir myrkur – Þættir af sérkennilegu fólki

Síðasta lag fyrir myrkur er… Þættir af sérkennilegu fólki.

Hjalti Snær Ægisson, bókmenntafræðingur, leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með.

Það eru ekki færri en sex höfundar sem koma að þessari sérstöku bók, Þættir af sérkennilegu fólki (höf. Anna Heiða Baldursdóttir o.fl.) sem var fyrsta bókin sem tekin var til umfjöllunar á reglulegum fundum hins frækna Lestrarfélags Framfarar. Sem áður heldur Hjalti um taumana og er þátturinn að hluta til tekinn upp á opnum fundi á Bókasafni Hafnarfjarðar þar sem að höfundar bókarinnar mættu í spjall. Bókin fjallar um fólk sem var á einhvern hátt hornreka í samfélögum fyrri tíðar og hvernig það bæði náði að þreyja þorrann og góuna og um leið að hafa áhrif á samtíð sína með margvíslegum hætti og er opnun þema annarinnar; birtingarmynda fátæktar í bókmenntum.

Þáttinn má finna á Spotify eða í spilaranum hér að neðan.