Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Heima er þar sem hjartað slær – Myndlistarsýning

Síðustu helgi opnaði sýningin „Heima er þar sem hjartað slær“ í aðalsal Bókasafns Hafnarfjarðar. Verkefnið er unnið í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ og snýr að upplifunum kvenna á hugmyndinni um heimili, þvert á þjóðerni. Allar eiga þær konur sem taka þátt sameiginlegt að hafa verið á faraldsfæti og haldið heimili í fleiri en einu landi og snýr sýningin að hugmyndinni um tíma, rúm og hvað það er að vera heima.

Tólf konur, undir handleiðslu listakvennanna Önnu Maríu Cornette og Gillian Pokalo, hafa hannað klukkur sem eru gerðar með blöndu af silkiprenti, akrýl og pennum á krossvið. Verkin ásamt hugleiðingum um myndval skrýða nú glugga bókasafnsins. Ásamt þessum verkum eru einnig klukkur sem gerðar voru í Bandaríkjunum og Reykjanesbæ þegar að vinnustofurnar voru fyrst haldnar í samvinnu við Heimskonur í Reykjanesbæ

Sýningin stendur til 3. september n.k. og eru allir hjartanlega velkomnir.