Hrafnhildur Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur, kennari og faggildur Gottman leiðbeinandi, mætir á foreldramorgunn og spjallar við okkur um margvísleg málefni sem nýtast þeim sem eru að feta sín fyrstu skref með nýtt kríli.
Meðal umræðuatriða verður m.a.:
- Ég, þú við, undirbúningur fyrir foreldrahlutverkið.
- Barnið heim, hvað svo? Áskoranir í nýju hlutverki.
- Þroski barna og tengslamyndun.
- Hvernig leysum við ágreining?
- Hvernig höldum við nándinni?
Við hvetjum foreldra til að mæta með krílin og góða skapið í kaffi, kruðerí og fræðslu á Bókasafni Hafnarfjarðar