Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

rúsína prinsessa

Rúsína prinsessa vill tunglið!

Fjölskyldustund Leiksýning Upplestur Börn Fjölskyldur
  • Jarðhæð, Bókasafn Hafnarfjarðar
Listahópurinn Kvistur verður með sviðsettan leiklestur á barnaleikritinu Rúsína prinsessa vill tunglið laugardaginn 2. september kl. 13.00 á Bókasafni Hafnarfjarðar.
Rúsína frá Sírópíu er heimtufrekasta prinsessa í heimi. Hún vill alltaf meira og meira. Pabbi hennar konungur Sírópíu er orðinn langþreyttur á duttlungunum hennar og þráir að setjast í helgan stein. Hann lætur boð út ganga að sá sem nær að uppfylla æðstu ósk Rúsínu prinsessu, að útvega henni sneið af tunglinu, fær að giftast henni og taka við konungsríkinu. Fátæki bóndasonurinn Markó Póló leggur upp í hættuför til að vinna hug prinsessunnar.
Skemmtilegt nútíma ævintýri fyrir börn og fullorðna.
Samdægurs kemur verkið út sem hlaðvarpsleikrit og verður aðgengilegt á helstu streymisveitum, en þetta er áttunda verkið í röð hlaðvarpsleikrita sem leikhópurinn sendir frá sér. Hlekki á streymi má finna á Facebooksíðu hópsins.