Klúbba- og hópastarf

Bókasafnið stendur fyrir klúbba- og hópastarfi bæði fyrir börn og fullorðna. Öllum er frjálst að sækja um leyfi til að nýta húsnæði bókasafnsins til klúbbastarfs að undanskildum trúar- og stjórnmálasamkomum.

Eftirfarandi hópar eru virkir á Bókasafni Hafnarfjarðar.

Anna

Fjölmenningarverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar, miðað sérstaklega að konum.

Hist er fjórða laugardag hvers mánaðar og spjallað, haldin námskeið, hlustað á fyrirlestra, farið í sérstakar ferðir, málað eða spilað, svo dæmi séu nefnd.

Anna á Facebook

Dagskráin er þátttakendum ávallt að kostnaðarlausu.

 

Foreldramorgnar

Foreldramorgnar eru haldnir í fjölnotasal Bókasafns Hafnarfjarðar reglulega á mánudögum kl. 10:00 – 12:00 yfir vetrartímann.

Foreldramorgnarnir eru hugsaðir sem notaleg samverustund og vettvangur fyrir foreldra til að koma saman með börn sín og spjalla yfir kaffi og meðlæti. Reglulega er boðið upp á ýmsar fróðlegar kynningar um efni sem tengist barneignum og uppeldi auk þess sem bókasafnið geymir mikið úrval af bókum um börn og uppeldi.

Nánari upplýsingar er að finna á Facebook-hópnum.

Foreldramorgnar á Facebook

Athugið að öllum er velkomið að hafa samband með hugmyndir um efni sem áhugi er fyrir að láta fjalla um eða koma með uppástungur um fyrirlesara.

 

Hittingarnir / The Meet-Ups

Hittingarnir eru mánaðarlegir viðburðir fyrir karlmenn, fjölbreytt dagskrá. Ávallt ókeypis og léttar veitingar í boði. Verkefnið er styrkt af Bókasafnasjóði. Frekari upplýsingar á Facebook-síðu Bókasafns Hafnarfjarðar.

 

Lestrarfélagið Framför

Lestrarfélagið er elsti starfandi hópur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er sem áður í traustum höndum Hjalta Snæs Ægissonar, bókmenntafræðings með meiru. Árið 2023/24 mun hópurinn hittast annan miðvikudag mánaðar kl. 19:30 og pæla í bók mánaðarins. Þema vetrarins er íslenska nýraunsæið.

Farið er um víðan völl innan bókmennta, allt frá léttum reifurum yfir í heimsbókmenntir skoðaðar og kynntar og ræddar yfir kaffibolla og kruðeríi.

Leslistinn fyrir veturinn 2023/24 er eftirfarandi:

  • 11. október: Vésteinn Lúðvíksson: Gunnar og Kjartan (1971-1972)
  • 15. nóvember: Málfríður Einarsdóttir: Samastaður í tilverunni (1977)
  • 13. desember: Guðlaugur Arason: Eldhúsmellur (1977)
  • 10. janúar: Magnea J. Matthíasdóttir: Hægara pælt en kýlt (1978)
  • 14. febrúar: Guðmundur Steinsson: Stundarfriður (1979)
  • 13. mars: Ása Sólveig: Treg í taumi (1979)
  • 10. apríl: Auður Haralds: Læknamafían (1980)
  • 8. maí: Ólafur Haukur Símonarson: Vík milli vina (1983)

Árið 2021 var Lestrarfélagið Framför í fríi vegna aðstæðna

Reglulega voru gefnir út hlaðvarpsþættirnir Síðasta lag fyrir myrkur þar sem Hjalti Snær leiddi okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Helltu upp á kaffi, sestu í uppáhaldsstólinn þinn og komdu með. Þættirnir eru aðgengilegir á öllum hlaðvarpsveitum og á Facebooksíðu bókasafnsins.

Umsjónarmaður: Dr. Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur

Þættir Síðasta lags fyrir myrkur: