Viðburðir 2024 - Kynstrin öll
Kynstrin öll snúa aftur! Fjórir höfundar, yndisleg kvöldstund, tónlist, veitingar og skemmtun fyrir alla sem vilja láta berast með hinu yndislega jólabókaflóði!
Við skörtum að sjálfsögu yndislegum gestum, en með okkur í þetta skiptið vera fjórir höfundar: Ragnheiður Jónsdóttir, Hallgrímur Helgason, Nanna Rögnvaldardóttir og Dagur Hjartarson – allt kanónur í sínum bransa – mætt með jólagleðina og glóðvolgar nýjar bækur.
Hjalti Snær Ægisson er góðvinum Bókasafnsins vel kunnur úr Lestrarfélaginu Framför, en hann leiðir spjallið af alkunnri snilld. Tónlist er í höndum rómatískra jóladjazzara, sem tóna fullkomnlega við rauðvínslögg og súkkulaði, enda erum við af notarlega taginu svona rétt fyrir jólin.
Kynstrin öll hafa nú þegar skipað sér sess í viðburðadagatali Bókasafns Hafnarfjarðar, oft komast færri að en vilja, svo við biðjum fólk að mæta tímanlega.