Jökull Tandri Ámundason, Dalverjagoði, leiðir létta göngu frá Bókasafni Hafnarfjarðar (Firði) um bæinn og fræðir ekki aðeins um víkinga þjóðveldisaldar og heiðinn sið, heldur einnig um víkinga samtímans sem eru virkur og þekktur hluti af bæjarlífi Hafnarfjarðar. Saga, heimspeki og skemmtun haldast hönd í hönd á þessari léttu göngu fyrir alla Hafnfirðinga jafnt sem gesti.