Vetrarfrí, vetrarfrí!! Við verðum með okkar sívinsæla ratleik, spil fyrir alla á 2. hæð, grímugerð á barnadeild og almennt stuð! Nördaklúbburinn verður að sjálfsögðu á sínum stað fyrir eldri krakkana, og VR í boði ásamt kortaspilum á þriðjudeginum. Hvað er í boði? Ratleikurinn: mánudaginn 24. feb. kl. 09:00-12:00; þriðjudaginn 25. feb. kl. 13:00-16:00 Spilaverið: á 2. hæð frá laugardegi til lokunar á þriðjudag Grímugerð: á barnadeild laugardag frá 13:00 til 15:00, mánudag frá 13:00 til 16:00 og þriðjudag frá 12:00-15:00 Tröllasmiðja með Vilborgu Bjarkadóttur: á þriðjudag kl 13:00-15:00 í fjölnotasal Nördaklúbburinn/VR: á þriðjudag kl 15:15-17:00 í fjölnotasal