vetrarfrí grunnskólanna
Hvað ætlar þú að gera í vetrarfríinu?
Það verður þægileg og kósí stemming á bókasafninu í vetrarfríinu, og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Hvernig væri að kúra í góðum stól og lesa bók, eða hlusta á tónlist? Ja, eða taka þátt íöllu sem er í gangi?
Helgina fyrir, laugardaginn 24. október er Anime-klúbbur fyrir 14-16 ára og sunnudaginn 25. október verður svo bókmenntaspjall fyrir eldri hópinn með Flumbru.
  • 26.-27. október verður fjársjóðsleit í gangi fyrir naska gesti.
  • Mánudaginn 26. október, þegar vetrarfrí formlega hefst, verður opni leikskólinn frá kl. 12:00 til 14:00, og listasmiðja frá kl. 16:00-17:00
  • Á þriðjudag, 27. október, verður svo spilakynning á nýju og spennandi spili kl. 15:30, og á verkstæðinu verður saumahittingur – og þema dagsins er að taka upp og breyta sniði fyrir sögulega kjóla.
Auðvitað verða öll okkar spil, bækur bíómyndir og blöð í boði fyrir þá sem vilja njóta frísins í rólegheitunum, – og við hlökkum til að sjá ykkur!