Það verður kósí ró hjá okku í vetrarfríi grunnskólanna, þægilegheit og hlýja fyrir alla káta krakka. Komdu og vertu með! 23. Okt Skellt verður í kósíbíó í fjölnotasal – 12:00 – 14:00 Teppi og grjónapokar og koddar og kósí! Komdu í bíó á Bókasafni Hafnarfjarðar! Smiðja í barnadeild – gerum okkar eigin bókakápur! – 13:00 – 15:00 Viltu skrifa bók? Eða kannski betrumbæta bók? Við búum til bókarkápur saman á barnadeildinni! Hvar er Valli ratleikur í gangi um bókasafnið allan daginn. 24. Okt Skellt verður í kósíbíó í fjölnotasal – 12:00 – 14:00 Teppi og grjónapokar og koddar og kósí! Komdu í bíó á Bókasafni Hafnarfjarðar! Smiðja í barnadeild – Skrímsli! – 13:00 – 15:00 Lítið eða stórt? Hvernig skrímsli má finna í sögunni þinni? Loðið? Slímugt? Eða bara sætt? Við búum það til saman! Hvar er Valli ratleikur í gangi um bókasafnið allan daginn.