Það verður nóg að gera í vetrarfríinu! Öskudagurnn er náttúrulega besta opnunin, en við tökum við söngfuglum frá kl 11 – bannað að syngja kaffilagið! Daginn eftir verður auka-VR klukkan 15:00, og stigataflan er komin upp og fullt af nýjum leikjum! Mættu með vinina og rústið þessu! Á föstudaginn verður svo Minecraft námskeið kl 13:00 – takmörkuð pláss og því hvetjum við fólk til að skrá sig á [email protected]! Á laugardag verður föndursmiðja frá 13:00-15:00 og bíó í fjölnotasalnum klukkan 13:00 – og svo verður líka hægt að koma og leika sér í nýja dótinu okkar í tónlistardeild! Skemmtum okkur saman í vetrarfríi!