Bókasafn Hafnarfjarðar kynnir með stolti í samstarfi við Söngskóla Sigurðar Demetz ljóðahringinn The Road Goes Ever On, verk Donald Swann eftir ljóðum J.R.R. Tolkien. Verkefnið er styrkt af Hafnarfjarðarbæ og unnið í tilefni af 100 ára afmæli Bókasafns Hafnarfjarðar og 120 ára afmæli J.R.R Tolkien.

Hringadróttinssaga Tolkien er án alls efa eitt áhrifamesta bókmenntaverk síðustu aldar. Það hefur verið fært í mörg form, bæði teikni- og kvikmyndir, og svo eins í tónlistarform. Velska tónskáldið Donald Swann, samtímamaður og félagi Tolkien, samdi sjö laga verkið ‘The Road Goes Ever On’ – eða Vegaljóðin – fyrir einsöngvara og kór árið 1967, og er þetta frumflutningur á Íslandi. Swann samdi tónlistina með aðkomu Tolkien’s sjálfs, sem las textana sjálfur upp á fyrstu hljóðritun verksins. Ljóðin eru sungin ýmist á ensku eða Quenya (álfamáli). Allir textarnir eru úr Hringadróttinssögu, að undanskildu lokaljóði úr sagnasafninu Ævintýri Tom Bombadils.

Tónlistarstjóri verkefnisins er Pétur Ernir Svavarsson, en hann leikur einnig á píanó. Flytjendur eru Erla Ruth Möller, Halldór Ívar Stefánsson, Hrefna Hlynsdóttir, Máni Emeric Primel, Natalía Sif Stefánsdóttir og Snjólaug Vera Jóhannsdóttir. Raddþjálfi er Þór Breiðfjörð.

Ljóðin eru sungin sem ferðalag, endalaust og síbreytilegt, en hver ferð er einstök, – og sú ferð sem endar heima er mögulega best. Ein ferð endar og önnur hefst, við minnumst gamalla vega á þeim nýja sem við göngum í dag og lífið sem ferðalag í leit að nýjum ævintýrum er megininntak ljóðana, – með þeim varfærnisorðum þó að sá sem gleymir hvert hann stefnir á á hættu að tína sjálfum sér.

Gengið verður frá Bókasafni Hafnarfjarðar til Mordor, og til baka í Hérað á Björtum dögum í Hafnarfirði – sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl kl. 16:00.
Aðgangur er að sjálfsögðu ókeypis. Tónleikarnir eru u.þ.b. 30 mínútur.