Í sumar mun úrvals tónlistarfólk á vegum Hamarsins, ungmennahúss Hafnarfjarðar gleðja gesti og gangandi með ljúfum tónum. Tónleikarnir eru liður í verkefninu Skapandi sumarstörf og er ætlað að glæða bæinn lífi og gera hann skemmtilegri, fallegri og fjölbreyttari með listrænum og skapandi uppákomum. MAGNÚS TREVENEN DAVÍÐSSON / “Kids on Holiday” Magnús Trevenen Davíðsson er lagahöfundur, gítarleikari og söngvari sem kallar sig listamannsnafninu “Kids on Holiday”. Verkefnið Magnúsar í sumar er að leggja lokahönd á stuttskífu eða svo kallaða “EP” plötu þar sem hann semur öll lögin og tekur upp sjálfur og mun gefa lögin út í lok sumars. Magnús var áberandi í miðbæ Hafnarfjarðar þann 17. júní á Austurgötuhátíðinni þar sem hann söng og spilaði víðsvegar fyrir gesti og gangandi og sló í gegn þegar hann kom fram í kvöld dagskránni sama kvöld. Kids on Holiday mun spila hjá okkur þriðjudagana 19. júlí, 26. júlí og 2. ágúst kl. 17:00.