Velkomin til þátttöku í sumarlestri Bókasafns Hafnarfjarðar.
- Sumarlesturinn stendur yfir frá 1. júní til 4. september 2021.
- Lestrardagbækur má nálgast á Bókasafni Hafnarfjarðar, í leik- og grunnskólum bæjarins og á sumarnámskeiðum grunnskólanna.
- Lestrarhestur vikunnar er dreginn út vikulega á föstudögum í allt sumar.
- Nálgast má umsagnarblöð fyrir lestrarhest vikunnar í afgreiðslu og barnadeild bókasafnsins.
- Skráning er rafræn. Áhugasamir geta skráð sig sjálfir eða beðið starfsfólk bókasafnsins um að skrá sig.
- Lestrardagbókum má byrja að skila 16. ágúst.
- Uppskeruhátíð verður haldin hátíðleg laugardaginn 4. september.
- Skráningu og nánari upplýsingar má nálgast á hfj.is/Sumarlestur .
Gleðilegt lestrarsumar!
Litli lestrarlemúrinn stendur með þér!