Sumardagurinn fyrsti á Bókasafni Hafnarfjarðar!
Við verðum að sjálfsögðu með opið á sumardaginn fyrsta og það verður mikið um að vera! Við byrjum á hressri og skemmtilegri dagskrá fyrir börn. Við fáum góða gesti og það verða smiðjur fyrir alla aldurshópa. Snillingarnir frá Intrix verða með okkur, þá er nú alltaf stuð, en við ætlum að skoða hvernig er hægt að kóða með perlum, búa til dulmál og „forrita“ til að leysa úr því. Engin skráning, ekkert vesen og allt á staðnum!
Það verður alþjóðleg sögustund og sögulestur á ensku – en sögumaðurinn er sko enginn venjulegur lesari, heldur prinsessa! Svo dembum við okkur í sögusmiðju beint á eftir.Kleinur og kaffi verða í boði fyrir alla sem vilja.
Klukkan 16:00 hefjast svo tónleikar, en hópur ungra listamanna flytur söngljóðaflokk úr Hringadróttinssögu Tolkiens í tónsetningu Donald Swann. Verkefnið er styrkt af Hafnarfjarðarbæ í tilefni 100 ára afmælis Bókasafns Hafnarfjarðar og er unnið í samstarfi við Söngskóla Sigurðar Demetz. Farið verður í fallega ævintýraferð frá Héraði og aftur heim, undir dyggri leiðsögn söngvara. Aðgangur er ókeypis.
Gleðilegt sumar!
Dagskrá á sumardaginn fyrsta:
13:00 – Alþjóðleg sögustund á ensku með alvöru prinsessu / International Story Hour with a real Princess!
13:00 – Intrix mætir með perlukóðunarsmiðju fyrir alla. Engin skráning, bara mæta og leika!
13:30 – Sögusmiðja í barnadeild til 15:00
16:00 – Tónleikar – The Road goes ever on. Hópur ungra listamanna flytur söngljóðaflokk úr Hringadróttinssögu Tolkiens í tónsetningu Donald Swann. Verkefnið er styrkt af Hafnarfjarðarbæ í tilefni 100 ára afmælis Bókasafns Hafnarfjarðar og er unnið í samstarfi við Söngskóla Sigurðar Demetz.
____________
Celebrate the first day of summer at the Hafnarfjörður Library!
We will naturally be open on the first day of summer and there will be plenty of things to enjoy! We start with a lively and fun program for children, and there will be workshops for all ages. The Smarty-pants from Intrix will be here, teaching and playing, but they are going to show us how you can code with Hama pearls, create secret codes, and make ‘programs’ to solve it. No registration, no hassle, – just come and play!
Then there will be an international storytelling session in English – and the narrator is no ordinary reader, but a princess! Then we’ll host a storytelling workshop right after, and of course there will be kleinur and coffee if you are feeling peckish.
A concert will begin at 16:00, with a group of young artists performing a song cycle from Tolkien’s Lord of the Rings saga, composed by Donald Swann. The project is funded by Hafnarfjarðarbær for the occasion of the 100th anniversary of the Hafnarfjörður Library, and is done in collaboration with the Sigurður Demetz School of Singing. We will travel on a beautiful adventure, There and Back Again, under the faithful guidance of our singing storytellers. Admission is free.
Happy summer!
Schedule for the first day of summer:
13:00 – International storytime with a real Princess!
13:00 – Intrix arrives with a Hama coding workshop for everyone. No registration, just show up and play!
13:30 – Storytelling workshop in the children’s department until 15:00
16:00 – Concert – The Road Goes Ever On (D. Swann / J.R.R. Tolkien). A group of young artists perform a group of songs from Tolkien’s The Lord of the Rings in a composition by Donald Swann. The project is funded by Hafnarfjarðarbær on the occasion of the 100th anniversary of the Hafnarfjörður Library, and is carried out in collaboration with the Sigurður Demetz School of Singing.