Teiknarinn Sólveig Eva verður á ný með myndasögunámskeið á Bókasafninu í sumar fyrir krakka á aldrinum 10-14 ára. Námskeiðið er frá klukkan 10 á morgnana til klukkan 13 á daginn, gert er ráð fyrir nestishlé og koma nemendur með eigið nesti. Námskeiðið er í boði dagana 19.-23.júní, þátttakendum að kostnaðarlausu og gert er ráð fyrir þátttöku alla fimm dagana. Takmörkuð pláss í boði. Allt efni er til staðar en ef þátttakendur vilja koma með sín eigin gögn er það einnig í boði. Skráning er á bókasafninu, í síma 585-5690 eða á netfanginu [email protected] . — Od 19 do 23 czerwca, w godzinach 10-13 w bibliotece Publicznej w Hafnarfjörður odbędą się warsztaty tworzenia komiksów które poprowadzi Sólveig Eva. Warsztaty są bezpłatne. Ilość miejsc ograniczona. Prosimy o rejestrację na adres: [email protected] , telefonicznie: 585-5690 bądź osobiście w Bibliotece