Megi mátturinn vera með ykkur öllum í maímánuði! Sem áður fögnum við fjórða maí – reyndar á laugardeginum sjöunda – en þá verður líf og fjör á Bókasafni Hafnarfjarðar! Við fáum frábæra gesti í heimsókn, en uppáhalds vondukallar allra, 501. hersveit keisarans, verða á svæðinu og hver veit nema að hans hátign sjálfur og hægri hönd hans, Svarthöfði, líti við! Allir krakkar fá geislasverð (á meðan birgðir endast) , við ætlum að föndra og leika okkur – gera Star Wars vísindatilraunir (en ekki sprengja neinar plánetur, lofum!), sýnum hvernig á að gera stormsveitarbrynju, vera með ratleiki og alls kyns skemmtun fyrir alla, allstaðar að úr stjörnuþokunni! Við hvetjum alla til að mæta í búningum!