Bókaklúbburinn Síðan er samstarfsverkefni Bókasafns Hafnarfjarðar og Ungmennahússins Hreiðursins. Síðan hefur þá sérstöðu frá öðrum bókaklúbbum að í stað þess að allir lesi fyrirfram ákveðna bók og ræði hana er tveimur þemaspurningum varpað fram viku fyrir hitting og eiga þátttakendur síðan að koma með eða segja frá bók sem þeir tengja við aðra hvora eða báðar þemaspurningarnar. Þessi bókaklúbbur er ætlaður ungmennum á aldrinum 16-25 ára og verður annan hvern þriðjudag kl. 17:30, stundum í Hreiðrinu og stundum á bókasafninu. Vonast er til að móta dagskrána og þemun út frá notendum og bjóða af og til upp á ýmiss konar vinnusmiðjur og höfundaheimsóknir. Snarl í boði, alltaf ókeypis! Ungmennahúsið Hreiðrið er staðsett í Nýsköpunarsetrinu við Lækinn, Skólabraut 3. Næstu dagsetningar: 24. mars 2026 kl. 17:30 – Hreiðrið, Nýsköpunarsetrinu við Lækinn (Skólabraut 3) 7. apríl 2026 kl. 17:30 – Hreiðrið, Nýsköpunarsetrinu við Lækinn (Skólabraut 3) 21. apríl 2026 kl. 17:30 – Hreiðrið, Nýsköpunarsetrinu við Lækinn (Skólabraut 3) 5. maí 2026 kl. 17:30 – Bókasafn Hafnarfjarðar (Strandgötu 1) 19. maí 2026 kl. 17:30 – Bókasafn Hafnarfjarðar (Strandgötu 1) SUMARFRÍ