Nú þegar við bjóðum saumavélar til útláns er ekki seinna vænna að græja sig og láta af því verða að sauma draumaflíkina – úr gömlum fötum!
Berglind Ómarsdóttir, kjóla- og klæðskerameistari, er mætt á nýjan leik og núna verður farið í „upcycling“, þ.e.a.s. að búa til nýjan, flottan fatnað úr gömlum fötum.

Námskeiðið verður haldið í fjölnotasal bókasafnsins og hentar byrjendum. Við hvetjum fólk til að koma með eigin saumavélar til að kynnast þeim betur. Skæri, fatakrítar og annað smávægilegt verður á staðnum, auk nokkurra saumavéla fyrir þá sem þurfa.
Þátttakendur útvega sjálfir gömul plögg sem þeir hafa hug á að breyta og skoða, og ekki er verra að grípa með aukaefni ef hönnunarandinn kemur yfir!

Þátttaka er að sjálfsögðu ókeypis, en er bundin skráningu og fer hún fram á bókasafninu eða í tölvupósti: [email protected]. Takmarkaður fjöldi sæta í boði.