Árið 1996 réðust Marsbúar í retrófílíng á jörðina í boði Tim Burton. Vopnaður sínum vönustu snillingum, Danny Elfman og Jonathan Gems, réðst Burton í að skapa einhverskonar ástaróð til geimveruhryllings sjötta áratugarins, sem segir að sjálfsögðu frá samskiptum Bandaríkjaforseta, hersins og vísindamanna við marsbúabrúður með ofvaxna heila og óþol fyrir jóðlandi kántrýtónlist.

Leikhópurinn er hreint stórfenglegur, en alls eru 23 aðalpersónur í myndinni, og á meðal leikara eru Jack Nicholson, Glenn Close, Annette Bening, Pierce Brosnan, Danny DeVito, Martin Short, Sarah Jessica Parker, Michael J. Fox, Rod Steiger, Tom Jones, Lukas Haas, Pam Grier og Natalie Portman.

Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar.