Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Ræmurýmið Office Space

Ræmurýmið kvikmyndaklúbbur – Office Space

Kvikmyndir
  • Fjölnotasalur, Bókasafn Hafnarfjarðar

Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar, og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar.

Office Space er óður til hinna vinnandi barna áttunda áratugarins, og kolsvört kómedía um dáleiðslu, fyrirtækjakúltúr, ömurlega yfirmenn, síbilandi prentara, sérfræðiþekkingarlausa „sérfræðinga“ og mikilvægi rauðra heftara.

Peter, Samir og Michael vinna á andlega dauðri skrifstofu hugbúnaðarfyrirtækis, klæðast hvítum skyrtum og þjást. Peter, að ráði unnustu sinnar, heimsækir dávald í tilraun til að ná taki á kvíða og lífsleiða, en það verður upphaf atburðarásar sem endar með ósköpum og skapofsaköstum gegn prenturum.

Myndin er nú þegar ein af stærri áhrifavöldum í dægurmenningu og skopi um skrifstofulíf, – og réttlæting þess að brenna niður byggingar ef einhver tekur heftarann þinn.
Meðal leikara eru Ron Livingston, Jennifer Aniston, Stephen Root og Gary Cole. Leikstóri og höfundur er Mike Judge.