Ræmurýmið er kvikmynda- og ræmuunnendaklúbbur Bókasafns Hafnarfjarðar og er í umsjón Gunnhildar Ægisdóttur, kvikmyndafræðings. Mánaðarlega kemur út stuttur hlaðvarpspistill um kvikmynd mánaðarins, og myndin svo sýnd á bókasafninu viku síðar. Er Die Hard Jólamynd? Skiptar skoðanir eru um þessa hjartnæmu sögu um mann sem leggur allt í sölurnar til að sameina fjölskylduna sína á jólum – með tilheyrandi sprengingum, vélbyssunotkun og falli frá háum stöðum. Fyrir viðburðinn er tilvalið að hlusta á Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar, en Gunnhildur Ægisdóttir tekur stutta krufningu á þessari klassík sem hóf kvikmyndaseríuna um John McCain, breytti Bruce Willis úr hjartaknúsara í harðjaxl og opinberaði guðsgjöfina sem er Alan Rickman fyrir heiminum. “If This Is Their Idea Of Christmas, I Gotta Be Here For New Year’s.”