Nú drögum við upp dásemdir úr kjallara og geymslum bókasafnsins! Á sumardaginn fyrsta opnum við plötumarkað, þar sem vínylbirgðir bókasafnsins verða til sölu. Ótal titlar og allt á 100 kr. stykkið! Allt sem skiptir máli er að tónlistin fái nýtt og gott heimili. Rokk, popp, klassík, heimstónlist – það finna allir eitthvað við sitt hæfi á vínylmarkaði Bókasafns Hafnarfjarðar! Opið er á sumardaginn fyrsta frá 11:00 til 15:00 og svo aðra daga samkvæmt venjubundnum afgreiðslutíma.