Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Fyrirlestur Þorvaldur Þorsteinsson

Örfyrirlestur – Lengi skal manninn reyna

Fyrirlestur Eldri borgarar Fjölskyldur Fullorðnir
  • Bókasafn Hafnarfjarðar,

Aldís Arnardóttir, forstöðumaður Hafnarborgar, flytur örfyrirlestur um líf og störf listamannsins Þorvalds Þorsteinssonar (1960-2013), en sýning á verkum hans er nú aðgengileg í Hafnarborg.
Þorvaldur var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Auk þess að fást við myndlist samdi hann skáldsögur, leikrit, ljóð og tónlist og varð landsþekktur fyrir Vasaleikhúsið sem flutt var í Ríkisútvarpinu 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Skáldsaga hans, Skilaboðaskjóðan, sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út árið 1986 og var síðar færð í leikbúning og sýnd í Þjóðleikhúsinu sem söngleikur árið 1993.
Fjórar bækur Þorvaldar um Blíðfinn hafa verið þýddar á fjölda tungumála og Borgarleikhúsið setti upp leikrit hans And Björk, Of Course… árið 2002. Hann hélt fjölmargar einkasýningar, jafnt á Íslandi sem erlendis, og tók þátt í alþjóðlegum samsýningum víða um heim.