Bjarni Sívertsen (1763-1833) var kaupmaður í Hafnarfirði og brautryðjandi í verslun og útgerð á Íslandi. Hann hefur verið nefndur faðir Hafnarfjarðar. Hann lét reisa íbúðarhús árið 1803-1805 og er það hús núna hluti af Byggðasafni Hafnarfjarðar. Bjarni hlaut viðurkenninguna riddari af Dannebrog frá Danakonungi, og var því títt nefndur Bjarni riddari.
Við fáum í heimsókn til okkar einn af snillingunum og viskubrunnunum sem búa hinumegin við Reykjavíkurveginn, á Byggðasafni Hafnarfjarðar, til að fræða okkur um þennan mæta mann.