Opnunarhátíð nýs Bókasafns Hafnarfjarðar

Ný kafli hefst – opnunarhátíð Bókasafns Hafnarfjarðar

Biðinni er loksins lokið! Bókasafnið opnar

 

Nýtt og glæsilegt Bókasafn Hafnarfjarðar opnar á 2. hæð í Firði – og við getum ekki beðið eftir að bjóða ykkur velkomin. Safnið sjálft opnar miðvikudaginn 5. ágúst kl. 9 og svo er opnunarhátíð rúmri viku síðar. Þetta er boð á þá hátíð!

Hvert bókasafn geymir þúsundir sagna. Nú hefst ný saga, saga rúmlega aldargamals Bókasafns Hafnarfjarðar í nýju og glæsilegu húsnæði. Opnunin snýst ekki bara um nýtt húsnæði heldur um nýjan kafla í menningarlífi bæjarins. Komdu og skoðaðu bjart og fallegt safn, hittu starfsfólkið og upplifðu nýjan samkomustað fyrir alla sem elska bækur, fróðleik, viðburði og notalega samveru.

Hvar? Bókasafn Hafnarfjarðar, 2. hæð í Firði

Hvenær? Fimmtudagurinn 13. ágúst frá kl. 16-18 (safnið er opið til 19)

Hvað? Sérstök opnunarhátíð (opið í Firði til kl. 19)

 

Komdu inn. Finndu þitt rými. Skrifaðu þinn kafla.

Við hlökkum til að sjá þig!