Gunnhildur Ægisdóttir, heklari, aðstoðar byrjendur jafnt sem lengra komna og kennir undirstöðu í amigurumi eða hekluðum smáfígúrum. Allt frá litlum músum yfir í ofurhetjubangsa. Grunnþekkingar í hekli er ekki krafist en er æskileg. Þátttaka er bundin skráningu og fer hún fram á bókasafninu eða í tölvupósti: [email protected]. Takmörkuð sæti í boði.