Það verður skemmtileg stemmning þann 21.mars á Bókasafni Hafnarfjarðar. Þar mætist tónlistarfólk úr mismunandi áttum í hljóðheimi frumdjassins og leikur fyrir ördansiballi fyrir gesti og gangandi! Áratugurinn 1920-1929 var glysfullur tími þar sem fólk sletti vel úr klaufunum eftir erfiðan tíma fyrri heimsstyrjaldarinnar. Nú er 2022 og tími til að gleðjast á ný! Komið á bókasafnið og baðið ykkur í dansandi tventís gleði! Hljómsveitin telur í kl 16:30 og mun leika í 40 mínútur. Það er ekki stórt dansgólfið, en við plönum að nýta það vel og skorum á alla að koma og dansa! Flytjendur eru: Elín Bryndís, söngur Katrín Guðnadóttir, söngur Magnús Pálsson, klarinett Konstantín Shcherbak, banjólín Dagur Bjarki Sigurðsson, píanó Ari Páll Kristinsson, kontrabassi