Músíkmóment á Bókasafni Hafnarfjarðar, fyrsta þriðjudag mánaðar klukkan 17:00! Þann 2. nóvember leiðir hljómsveitin Tendra okkur inn í veturinn, svo stuttu eftir fyrsta vetrardag. Hljómsveitin er mönnuð þeim Mikael Mána og Marínu Ósk, sem flytja lágstemmda og blíða tóna til að auðvelda okkur vaxandi skammdegið. Tónleikarnir verða í aðalútlánasal á jarðhæð bókasafnsins. Dagskrá Músíkmómenta haustið 2021: 7. september – Rebekka Blöndal 5. október – Kristín Sesselja 2. nóvember – Hljómveitin Tendra: Marína Ósk og Mikael Máni 7. desember – Á Léttu Nótunum: Jólaprógramm