Automatic translation by Google Translate. We can not guarantee that it is accurate.

Músíkmóment Kristín Sesselja

Músíkmóment – Kristín Sesselja

Tónleikar Börn Eldri borgarar Fjölskyldur Fullorðnir Unglingar
  • 1. hæð, Bókasafn Hafnarfjarðar

Músíkmóment á Bókasafni Hafnarfjarðar, fyrsta þriðjudag mánaðar klukkan 17:00!

Þann 4. janúar kemur Kristín Sesselja, tvítug söngkona og lagahöfundur sem hefur klifið upp á stjörnuhimininn nýverið.
Kristín semur aðallega popp, en hefur búið til sinn eigin einstaka tónlistarstíl sem endurspeglar líf hennar og persónulega reynslu, allt frá ástarsorg til vináttu.

Tónleikarnir verða í aðalútlánasal á jarðhæð bókasafnsins.